Orkuveitan | Útboð á grænum skuldabréfum 6. nóvember

Published 1 uke siden Positive
Orkuveitan | Útboð á grænum skuldabréfum 6. nóvember
Auto
Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 6. nóvember 2025. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR031033 GB, OR180242 GB og OR180255.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 11.265 m.kr. í flokknum.

OR180242 GB ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2042. Flokkurinn ber 4,50% fasta vexti og er uppgreiðanlegur árið 2037. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 11.058 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út og tekin til viðskipta bréf að nafnverði 39.771 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið [email protected] fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 6. nóvember 2025. Uppgjör viðskipta fer fram fimmtudaginn 13. nóvember 2025.

Nánari upplýsingar veita:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: [email protected]
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: [email protected]