Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa

Published för 1 månad sedan Positive
Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa
Auto
Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 7. október kl. 15:00. Boðnir verða til sölu óverðtryggðu flokkarnir LBANK CB 27 og LBANK CB 29 og verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 31.

Áætlaður uppgjörsdagur er 14. október 2025.

Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, [email protected].