Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 41

Published 4 weeks ago Positive
Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 41
Auto
Í 41. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.700.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)6.10.202511:40600.0004,832.898.0007.10.202512:29600.0004,882.928.0008.10.202511:14600.0004,922.952.0009.10.202510:24600.0004,942.964.00010.10.202510:33600.0004,932.958.000Samtals3.000.000 14.700.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 56.400.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 59.400.000 hluti, eða um 1,67% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 289.515.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á [email protected]