Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Birting grunnlýsingar

Published 2 months ago Positive
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Birting grunnlýsingar
Auto
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf., kt. 410998-2629, Fiskislóð 14 101 Reykjavík, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa og víxla. Grunnlýsingin er dagsett 5. september 2025, staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, https://www.urseafood.is/is/skuldabrefafjarmognun/.

Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar og hjá útgefanda á skrifstofu félagsins við Fiskislóð 14 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu.

Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, á netfanginu [email protected] eða í síma 580-4227.