Ölgerðin hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma víxla og skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 9. október 2025, staðfest af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu Ölgerðarinnar, https://www.olgerdin.is/fjarfestar/skuldabrefa-og-vixlautgafa. Grunnlýsingin er hér meðfylgjandi en hana má jafnframt nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar.
Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Þorsteinn Oddleifsson, fjármálastjóri, [email protected]
Viðhengi
Grunnlýsing ÖES 2025
Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Birting grunnlýsingar
Published 1 month ago
Oct 9, 2025 at 8:02 PM
Positive
Auto