REITIR: Kynningarfundur í streymi vegna birtingu uppgjörs 10. nóvember

Published 1 day ago Positive
REITIR: Kynningarfundur í streymi vegna birtingu uppgjörs 10. nóvember
Reitir munu birta uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2025 þann 10. nóvember eftir lokun markaða.

Á rafrænum kynningarfundi þann 11. nóvember kl. 8:30 munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum.

Streymi fundarsins má nálgast á slóðinni: https://vimeo.com/event/5501522/embed/3d86df1752/interaction.

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið [email protected].

Uppgjörið og kynningarefni verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.