Lánasjóður sveitarfélaga - Árshlutauppgjör og kynningarfundur

Published 2 måneder siden Positive
Lánasjóður sveitarfélaga - Árshlutauppgjör og kynningarfundur
Auto
Áætlað er að stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. samþykki árshlutareikning sjóðsins fyrir fyrstu 6 mánuði 2025 á stjórnarfundi, fimmtudaginn 21. ágúst 2025 og verður hann birtur í kjölfarið.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 22. ágúst kl. 12.00 á skrifstofu sjóðsins, Borgartúni 30, 5. hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Boðið verður upp á nettar veitingar.

Boðið er að sækja fundinn rafrænt í gegnum Teams. Þáttakendur beðnir um að staðfesta þátttöku á fundinum með því að senda tölvupóst á [email protected] og tiltaka hvort þeir hyggjast mæta á staðfund eða sækja fundinn rafrænt.

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949