Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SEL I hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í nóvember árið 2024.
Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á fyrri hluta ársins 2025 að fjárhæð 3 USD samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.Eignir sjóðsins þann 30. júní 2025 námu 35.534.059 USD og hrein eign sjóðsins nam 107 USD samkvæmt efnahagsreikningi.Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi 2025, efnahag hans 30. júní 2025 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri hluta ársins 2025, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. https://www.stefnir.is/kaupholl
Nánari upplýsingar veitir Per Matts Henje, [email protected]
Viðhengi
SEL I árshlutareikningur 30.06.2025
Árshlutareikningur SEL I hs. 30.06.2025
Published 2 måneder siden
Aug 27, 2025 at 3:03 PM
Positive
Auto