Meðfylgjandi er staðfesting Deloitte ehf. á skýrslu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu ÚR 151124, ÚR 151126, ÚR 151128 og ÚR 260415. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar árshluta- og ársreiknings félagsins en árshlutauppgjör samstæðu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. var birt 29. ágúst 2025.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og var skýrsla um fjárhagslegar kvaðir því staðfest.
Nánari upplýsingar veitir Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. í síma 580-4200.
Viðhengi
Staðfesting Deloitte 30.06.2025
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Staðfesting á skýrslu um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka ÚR
Published 2 måneder siden
Sep 3, 2025 at 1:57 PM
Positive
Auto