Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 8. september 2025 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2026 og langtímaáætlun fyrir árin 2027 til 2030. Fjárhagsáætlunin byggir á útgönguspá fyrir árið 2025.
Helstu atriði í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 eru:
Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2025 verði jákvæð um 9.349 m.kr.Áætlað er að rekstrartekjur nemi 7.847 m.kr. eða áætluð aukning um 5,9% frá fyrra ári.Áætlað er að rekstrargjöld nemi 4.495 m.kr. eða áætluð aukning um 6,6% frá fyrra ári.Áætlað er að matsbreytingar fjárfestingareigna nemi 6.710 m.kr.Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 3.323 m.kr.Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 118 m.kr.Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði 54,8% í lok árs.Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 57.Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 3.939 m.kr.Áætlað er að 30,5% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 69,5% með lánsfé.Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.
Meðfylgjandi er áætlun ársins 2026 og langtímaáætlun 2027 til 2030.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, [email protected] sími 520-1500
Viðhengi
Fjárhagsáætlun Félagsbústaða 2026-2030
Félagsbústaðir hf. - Fjárhagsáætlun 2026
Published 2 måneder siden
Sep 8, 2025 at 10:21 AM
Neutral
Auto