Síminn hf. - Birting grunnlýsingar

Published 1 måned siden Positive
Síminn hf. - Birting grunnlýsingar
Auto
Síminn hf., kt. 460207-0880, Ármúla 25, 108 Reykjavík hefur birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma skuldaskjala. Grunnlýsingin er dagsett 22. september 2025 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Grunnlýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins https://www.siminn.is/fjarfestar.

Nánari upplýsingar um Símann hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu og á vefsíðu félagsins. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Nánari upplýsingar veita:
María Björk Einarsdóttir, forstjóri, [email protected].
Davíð B Scheving, forstöðumaður fjárstýringar, [email protected].

Viðhengi

Síminn hf. - Grunnlýsing 22.09.2025