Í 40. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.502.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)29.9.202512:42600.0004,882.928.00030.9.202509:47600.0004,832.898.0001.10.202509:49600.0004,822.892.0002.10.202509:59600.0004,822.892.0003.10.202509:34600.0004,822.892.000Samtals3.000.000 14.502.000
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 53.400.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 56.400.000 hluti, eða um 1,59% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 274.815.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á [email protected]
Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40
Published 1 måned siden
Oct 6, 2025 at 8:59 AM
Positive
Auto